Úrræðaleit
Á www.nseries.com/support má sjá svör við
algengum spurningum frá notendum tækisins.
Spurning: Hvert er lykilorðið mitt fyrir
læsingar-, PIN, eða PUK-númerin?
Svar: Sjálfgefinn númerakóði læsingar er 12345. Ef
þú gleymir eða glatar læsingarkóðanum skaltu hafa
samband við Nokia Care þjónustuver eða
símafyrirtækið þitt. Ef þú gleymir eða glatar PIN-
eða PUK-númeri, eða ef þú hefur ekki fengið slíkt
númer, skaltu hafa samband við þjónustuveituna.
Upplýsingar um lykilorð fást hjá
aðgangsstaðaþjónustu, t.d. netþjónustuveitu eða
símafyrirtæki.
Spurning: Hvernig loka ég forriti sem er
frosið, þ.e. svarar ekki?
Svar: Haltu inni . Forriti er lokað með því að velja
það og ýta á C. Ekki er slökkt á tónlistarspilaranum
þegar ýtt er á C. Til að slökkva á tónlistaspilaranum
velurðu hann af listanum og svo
Valkostir
>
Hætta
.
Spurning: Af hverju virðast myndir vera
óskýrar?
Svar: Gakktu úr skugga um að hlífðargler
myndavélarlinsunnar séu hrein.
Spurning: Hvers vegna sjást daufir,
upplitaðir eða skærir punktar á skjánum í
hvert skipti sem ég kveiki á tækinu?
Svar: Þetta er einkennandi fyrir þessa gerð af skjám.
Á sumum skjám geta verið dílar eða punktar sem
lýsa annaðhvort stöðugt eða alls ekki. Hér er ekki
um að ræða galla heldur eðlilegan hlut.
Spurning: Af hverju getur tækið mitt ekki
komið á GPS-tengingu?
Svar: Nánari upplýsingar um GPS, GPS-móttakara,
merki gervitungla og staðsetningarupplýsingar er
að finna í þessari notendahandbók.
Sjá
„Staðsetning (GPS)“, bls. 57.
Spurning: Af hverju finn ég ekki tæki vinar
míns þegar ég nota Bluetooth?
Svar: Gakktu úr skugga um að tækin séu samhæf, að
kveikt sé á Bluetooth og tækin séu sýnileg. Gakktu
einnig úr skugga um að fjarlægðin á milli tækjanna
159
Úrræðaleit
tveggja sé ekki meiri en 10 metrar (33 fet) og að ekki
séu veggir eða aðrar hindranir á milli þeirra.
Spurning: Af hverju get ég ekki slitið
Bluetooth-tengingu?
Svar: Ef annað tæki er tengt við tækið þitt getur þú
slitið tengingunni í hinu tækinu eða slökkt á
Bluetooth í tækinu þínu. Ýttu á og veldu
Verkfæri
>
Bluetooth
>
Bluetooth
>
Slökkt
.
Spurning: Af hverju birtast skrárnar sem ég
hef vistað í tækinu mínu ekki á
heimakerfinu?
Svar: Gakktu úr skugga um að þú hafir stillt
heimakerfið, að kveikt sé á samnýtingu efnis í
tækinu þínu og að hitt tækið sé UPnP-samhæft.
Spurning: Hvað á ég að gera ef tengingin við
heimakerfið mitt hættir að virka?
Svar: Slökktu á þráðlausu staðarnetstengingunni
(WLAN) í samhæfu tölvunni og tækinu og kveiktu
svo aftur á henni. Ef það nægir ekki skalt ræsa
tölvuna og tækið á ný. Ef ekki tekst enn að koma á
tengingu skaltu setja þráðlausu
staðarnetsstillingarnar aftur upp í tölvunni og
tækinu.
Sjá „Þráðlaust staðarnet“, bls. 76.Sjá
„Tengistillingar“, bls. 153.
Spurning: Hvers vegna sé ég samhæfu
tölvuna mína ekki í tækinu á heimakerfinu?
Svar: Ef þú ert með eldvegg í tölvunni skaltu gæta
þess að hann leyfi Home Media Server að nota ytri
tenginguna (hægt er að bæta Home Media Server á
undantekningalista eldveggsins). Gættu þess á
stillingum eldveggsins að forritið leyfi flutning til
eftirfarandi gátta: 1900, 49152, 49153 og 49154.
Sum aðgangsstaðartæki fyrir þráðlaust staðarnet
eru með innbyggðan eldvegg. Þá skal gæta þess að
eldveggurinn í tækinu hindri ekki flutning til
eftirfarandi gátta: 1900, 49152, 49153 og 49154.
Gakktu úr skugga um að stillingar þráðlausa
staðarnetsins séu eins í tækinu og samhæfu
tölvunni.
Spurning: Hvers vegna get ég ekki séð
aðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet þó svo
ég viti að ég er innan móttökusvæðis hans?
Svar: Verið getur að aðgangsstaðurinn noti falinn
SSID-kóða. Þú getur aðeins fengið aðgang að
netkerfum sem nota falinn SSID-kóða ef þú veist
kóðann og hefur búið til internetaðgangsstað fyrir
þráðlausa staðarnetið í Nokia-tækinu þínu.
Spurning: Hvernig slekk ég á þráðlausu
staðarneti í Nokia tækinu mínu?
Svar: Tengingin við þráðlausa staðarnetið rofnar
þegar þú ert ekki að reyna að tengjast eða ert ekki
með tengingu við annan aðgangsstað eða að leita
160
Úrræðaleit
að tiltæku netkerfi. Til að draga enn frekar úr
rafhlöðueyðslu er hægt að stilla Nokia-tækið
þannig að það leiti ekki eða leiti sjaldnar að
tiltækum netkerfum í bakgrunni. Það slokknar á
þráðlausa staðarnetinu milli þess sem leit fer fram
í bakgrunni.
Til að breyta stillingum bakgrunnsleitar:
1.
Styddu á og veldu
Verkfæri
>
Stillingar
>
Tenging
>
Þráðl. staðarnet
.
2.
Tímabil bakgrunnsleitarinnar er aukið með því
að stilla tímann í
Leitað að staðarnetum
.
Slökkt er á bakgrunnsleit með því að velja
Sýna
vísi staðarneta
>
Aldrei
.
3.
Breytingarnar eru vistaðar með því að ýta á
Til
baka
.
Þegar
Leitað að staðarnetum
er stillt á
Aldrei
birtist táknið fyrir tiltæk þráðlaus staðarnet ekki
í biðstöðu. Þú getur hins vegar enn leitað
handvirkt að tiltækum þráðlausum netkerfum
og tengst þráðlausu neti eins og venjulega.
Spurning: Hvernig get ég vistað gögnin áður
en ég eyði þeim?
Svar: Gögn eru vistuð á eftirfarandi hátt: Notaðu
Nokia Nseries PC Suite til að taka öryggisafrit af
öllum gögnum á samhæfa tölvu. Sendu myndir á
tölvupóstfangið þitt og vistaðu þær svo á tölvunni.
Sendu gögn um Bluetooth í samhæft tæki. Einnig er
hægt að vista gögn á samhæfu minniskorti.
Spurning: Af hverju get ég ekki valið tengilið
fyrir skilaboðin mín?
Svar: Tengiliðaspjaldið inniheldur hvorki
símanúmer, vistfang né tölvupóstfang. Ýttu á ,
veldu
Tengiliðir
og breyttu tengiliðaspjaldinu.
Spurning: Hvernig get ég lokað
gagnatengingu sem tækið kemur alltaf á
aftur?
Svar: Tækið kann að vera að reyna að sækja
margmiðlunarskilaboð frá skilaboðastöðinni. Til að
láta tækið hætta að koma á gagnatengingu ýtirðu
á og velur
Skilaboð
>
Valkostir
>
Stillingar
>
Margmiðlunarboð
>
Móttaka margmiðl.
og
Handvirkt val
til að láta skilaboðamistöðina vista
skilaboðin þannig að þú getir sótt þau síðar, eða
Óvirk
til að hundsa öll móttekin
margmiðlunarskilaboð. Ef þú velur
Handvirkt val
færðu tilkynningu um að ný margmiðlunarskilaboð
bíði þín í skilaboðamiðstöð margmiðlunarboða. Ef
þú velur
Óvirk
kemur tækið aldrei á tengingu við
farsímakerfið vegna margmiðlunarskilaboða. Til að
láta tækið aðeins nota pakkagagnatengingu ef þú
ræsir forrit eða aðgerð sem þarfnast hennar ýtirðu
á og velur
Verkfæri
>
Stillingar
>
Tenging
>
Pakkagögn
>
Pakkagagnatenging
>
Ef með
þarf
. Ef þetta hjálpar ekki skaltu slökkva á tækinu
og kveikja á því aftur.
161
Úrræðaleit
Spurning: Af hverju á ég í vandræðum með
að tengja tækið við tölvuna mína?
Svar: Gakktu úr skugga um að nýjasta útgáfan af
Nokia Nseries PC Suite sé sett upp í tækinu og að
hún sé uppsett og keyri í tölvunni. Til að sjá
upplýsingar um notkun Nokia Nseries PC Suite
skaltu skoða hjálparvalmyndina í Nokia Nseries PC
Suite eða þjónustusíður Nokia.
Spurning: Get ég notað tækið sem faxmótald
með samhæfri tölvu?
Svar: Þú getur ekki notað tækið sem faxmótald. Með
því að nota símtalsflutning (sérþjónusta) getur þú
hins vegar beint mótteknum faxsendingum í annað
símanúmer.
162
Úrræðaleit