Reiknivél
Ýttu á og veldu
Forrit
>
Reiknivél
.
Til athugunar: Nákvæmni reiknivélarinnar
er takmörkuð og hún er ætluð til einfaldra
útreikninga.
Til að reikna skaltu slá inn fyrstu töluna í
útreikningnum. Veldu valkost, til dæmis
samlagningu eða frádrátt. Sláðu inn aðra tölu
útreikningsins og veldu =.
Reiknivélin reiknar tölur í þeirri röð sem þær eru
slegnar inn. Útkoman birtist á skjánum og hægt er
að nota hana sem fyrstu töluna í nýjum útreikningi.
Til að vista niðurstöðuna velurðu
Valkostir
>
Minni
>
Vista
. Fyrri niðurstöðu er skipt út í
minninu fyrir nýju niðurstöðuna.
Til að sækja niðurstöður útreikninga úr minninu og
nota þær í útreikningi velurðu
Valkostir
>
Minni
>
Úr minni
.
Veldu
Valkostir
>
Síðasta útkoma
til að skoða
síðustu vistuðu niðurstöðu. Talan er áfram í
minninu þó svo að forritinu sé lokað eða slökkt sé á
tækinu. Hægt er að sækja vistuðu niðurstöðuna
næst þegar reiknivélin er opnuð.