Stjórnandi forrita
Með stjórnanda forrita er hægt að skoða
hugbúnaðarpakka sem hafa verið settir upp í
tækinu. Hægt er að skoða upplýsingar um forrt sem
hafa verið sett upp, fjarlægja forrit og skilgreina
uppsetningarstillingar.
Ýttu á og veldu
Forrit
>
Stj. forrita
.
Þú getur sett upp tvenns konar forrit og hugbúnað
í tækinu:
●
J2ME-forrt byggð á Java-tækni með
endingunni .jad eða .jar.
●
Önnur forrit og hugbúnað sem er sérstaklegar
ætlaður Symbian-stýrikerfum með
endingunni .sis eða .sisx
Aðeins skal setja upp hugbúnað sem er sérstaklega
hannaður fyrir tækið: Nokia N82
Hugbúnaðarframleiðendur vísa stundum til
opinbers heitis þessarar vöru: Nokia N82-1.
139
Forritamappa