Klippa mynd
Mynd er klippt með því að velja
Valkostir
>
Nota
áhrif
>
Skurður
eða tiltekið hlutfall af listanum.
Til að klippa mynd velurðu
Handvirkt
.
Ef þú velur
Handvirkt
birtist kross efst í vinstra
horni myndarinnar. Notaðu skruntakkann til að
velja svæðið sem á að klippa og veldu
Festa
. Annar
kross birtist neðst í hægra horninu. Veldu aftur
svæðið sem á að klippa. Til að stilla aftur fyrsta
svæðið skaltu velja
Til baka
. Þau svæði sem eru
valin mynda ferhyrning utan um þá mynd sem
kemur út úr klippingunni.
Ef þú velur hlutfall skaltu velja efra hornið til vinstri
þar sem á að klippa. Notaðu skruntakkann til að
stilla auðkennda svæðið. Hægt er að frysta valið
svæði með því að ýta á skruntakkann. Hægt er að
færa til svæðið með skruntakkanum. Ýttu á
skruntakkann til að velja svæðið sem á að klippa.