Myndprentun
Til að prenta myndir með valkostinum Prentun
mynda skaltu velja myndina sem á að prenta og
síðan prentvalkostinn í galleríinu, myndavélinni,
myndvinnslunni eða á myndskjánum.
Notaðu myndprentun til að prenta myndir með
samhæfðu USB-tengi eða Bluetooth. Einnig er hægt
að prenta myndir um þráðlaust staðarnet. Hafi
samhæfu minniskorti verið komið fyrir er hægt að
geyma myndir á minniskortinu og prenta þær út á
samhæfum prentara.
Aðeins er hægt að prenta myndir sem eru á .jpg-
sniði. Myndirnar sem teknar eru með myndavélinni
eru sjálfkrafa vistaðar á .jpeg-sniði.