
Netprentun
Með Netprentun er hægt að panta útprentun af
myndum á netinu og fá þær sendar beint heim til
sín eða í verslun, þangað sem þær eru svo sóttar.
Einnig er hægt að panta ýmsar vörur með tiltekinni
mynd, svo sem krúsir eða músarmottur. Það veltur
á þjónustuveitunni hvaða vörur eru í boði.
Að minnsta kosti ein prentstillingaskrá þarf að vera
uppsett í tækinu til að hægt sé að nota Netprentun.
Hægt er að fá skrárnar hjá prentþjónustuveitum
sem styðja Netprentun.
Nánari upplýsingar um forritið er að finna í
bæklingum á þjónustusíðum Nokia eða vefsetri
Nokia í viðkomandi landi.