Venjuleg símtöl
1.
Sláðu inn símanúmerið í biðstöðu, þ.m.t.
svæðisnúmerið. Tölustaf er eytt með því að ýta
á C.
Ýttu tvisvar sinnum á * ef þú vilt hringja til
útlanda (kemur í stað alþjóðlega
svæðisnúmersins) og sláðu inn landsnúmerið,
svæðisnúmerið (án 0, ef með þarf) og svo
símanúmerið.
2.
Ýttu á hringitakkann til að hringja í númerið.
3.
Ýttu á hættatakkann að leggja á eða hætta við
að hringja.
Það að ýta á hættatakkann lýkur alltaf símtali,
jafnvel þó svo að annað forrit sé opið.
Til að hringja úr Tengiliðum ýtirðu á og velur
Tengiliðir
. Flettu að nafninu sem þú vilt velja eða
sláðu fyrstu stafi þess inn í leitarreitinn. Listi yfir þá
tengiliði sem passa við það sem þú slærð inn birtist.
Ýttu á hringitakkann til að hringja. Ef þú hefur vistað
nokkur númer við tengilið skaltu velja númerið sem
þú vilt hringja í af listanum.