Opnunarlyklar
Til að skoða opnunarlykla notkunarleyfa ýtirðu á
og velur
Forrit
>
Miðlar
>
Opn.lyklar
.
Stafræn réttindatækni (DRM)
Eigendur efnis kunna að nota mismunandi gerðir
stafrænnar réttindatækni (DRM) til að vernda
hugverkarétt sinn, þ.m.t. höfundarrétt. Þetta tæki
notar mismunandi gerðir stafrænnar tækni til að
opna stafrænt varið efni. Með þessu tæki er hægt að
fá aðgang að efni sem verndað er með WMDRM 10,
OMA DRM 1.0 og OMA DRM 2.0. Ef tiltekinn stafrænn
hugbúnaður nær ekki að verja efni kunna
efniseigendur að biðja um að geta slíks hugbúnaðar
til að opna nýtt efni sem er varið með stafrænum
98
Mappa h
ljó
ð- og myn
dsk
ráa
réttindum sé endurvakin. Slíkt kann einnig að
hindra endurnýjun þess stafræns varins efnis sem
er þegar í tækinu. Afturköllun slíks hugbúnaðar
hefur ekki áhrif á notkun efnis sem er verndað með
öðrum gerðum stafrænna réttinda eða notkun efnis
sem ekki er verndað með stafrænum réttindum.
Efni sem verndað er með notkunarleyfi (DRM) fylgir
viðeigandi opnunarlykill sem tilgreinir rétt þinn á
að nota efnið.
Ef tækið er með OMA DRM varið efni skal nota
öryggisafritunaraðgerðina í Nokia PC Suite til að
taka öryggisafrit af bæði opnunarlyklunum og
efninu. Ekki er víst að hægt sé að flytja
opnunarlyklana og efnið í tækið með öðrum
aðferðum þannig að hægt sé að nota áfram efnið
sem verndað er með OMA DRM eftir að minni
tækisins hefur verið forsniðið. Einnig getur verið
nauðsynlegt að flytja opnunarlyklana aftur í tækið
ef skrárnar í tækinu skemmast.
Ef WMDRM-varið efni er í tækinu glatast það efni
ásamt opnunarlyklum þess ef minni tækisins er
forsniðið. Einnig geta opnunarlyklarnir og efnið
glatast ef skrár í tækinu verða fyrir skemmdum. Ef
opnunarlyklarnir eða efni glatast getur verið
vandkvæðum bundið að nota sama efnið aftur í
tækinu. Nánari upplýsingar fást hjá
þjónustuveitunni.
Sumir opnunarlyklar kunna að vera tengdir tilteknu
SIM-korti og aðeins er hægt að fá aðgang að varða
efninu ef SIM-kortið er í tækinu.
Á aðalskjánum skaltu velja úr eftirfarandi:
●
Gildir lyklar
— Skoða lykla sem eru tengdir
miðlunarskrám eða lykla sem ekki hafa tekið
gildi.
●
Ógildir lyklar
— Til að skoða ógilda lykla, skrár
þar sem notkunartíminn er runninn út eða varðar
skrár sem ekki eru tengdar neinum
opnunarlyklum.
●
Lyklar án notk.
— Til að skoða lykla sem sem
ekki eru tengdir neinni skrá í tækinu.
Til að kaupa aukinn notkunartíma fyrir
miðlunarskrá velurðu ógildan opnunarlykil og
Valkostir
>
Sækja nýjan lykil
(vefþjónustuboð
þurfa að vera virk).
Sjá „Stillingar
vefþjónustu“, bls. 118.
Nákvæmar upplýsingar um skrá, líkt og gildistíma
hennar og það hvort hægt sé að senda hana, fást
með því að velja opnunarlykil og ýta á
skruntakkann.