
Flass
Aðeins er hægt að nota flassið með
aðalmyndavélinni.
Haldið hæfilegri fjarlægð þegar flassið er notað.
Notið ekki flassið á fólk eða dýr af mjög stuttu færi.
Hyljið ekki flassið þegar mynd er tekin.
Myndavélin notar xenon-flass fyrir myndatöku við
litla lýsingu. Það er ekki hægt að velja xenon-flassið
í íþróttastillingunni eða þegar myndaröð hefur
verið valin og svo
Törn
.
Ekki er hægt að taka myndir fyrr en xenon-flassið er
fullhlaðið nema það sé stillt á
Slökkt
. blikkar á
skjánum þegar flassið er að hlaða sig. Það tekur
xenon-flassið yfirleitt nokkrar sekúndur að hlaða
sig.
Hægt er að velja eftirfarandi flassstillingar fyrir
myndatöku:
Sjálfvirkt
( ),
Laga augu
( ),
Kveikt
( ) og
Slökkt
( ).
Skipt er um flassstillingu með því að velja nýja
stillingu á tækjastikunni.