Venjulegur innsláttur texta
Ýttu endurtekið á einhvern takka (1–9) þar til
stafurinn sem þú vilt fá fram birtist. Hver takki
inniheldur fleiri stafi en þá sem eru prentaðir á
hann.
Ef næsti stafur er á sama takka og stafurinn sem þú
varst að slá inn skaltu bíða þar til bendillinn birtist
(eða fletta til hægri ef þú vilt ekki bíða) og slá svo
inn stafinn.
Bil er sett inn með því að ýta á 0. Ýttu þrisvar sinnum
á 0 ef þú vilt færa bendilinn í næstu línu.