Skoða kort
Umfang korta er misjafnt eftir löndum.
Þegar forritið Kort er opnað dregur það inn að þeirri
staðsetningu sem vistuð var síðast þegar það var
notað. Ef engin staðsetning var vistuð dregur
forritið Kort inn að höfuðborg þess lands sem þú ert
í, byggt á þeim upplýsingum sem tækið fær frá
farsímakerfinu. Á sama tíma er korti
staðsetningarinnar hlaðið niður, ef því hefur ekki
verið hlaðið niður áður.
Núverandi staðsetning
Hægt er að koma á GPS-sambandi og fá upp
núverandi staðsetningu með því að velja
Valkostir
>
Núverandi staðsetning
eða ýta á 0.
Ef það kviknar á orkusparnaðinum þegar tækið
reynir að koma á GPS-tengingu er tilrauninni hætt.
GPS-vísir
birtist á skjánum. Eitt strik
merkir einn gervihnött. Á meðan tækið reynir að
finna gervihnött er strikið gult. Þegar tækið fær næg
gögn frá gervihnettinum til að koma á GPS-
tengingu verður strikið grænt. Því fleiri græn strik
þeim mun öflugri er GPS-tengingin.
Þegar GPS-tengingin er virk er núverandi
staðsetning sýnd á kortinu með .
Að færast til og nota
aðdrátt
Til að færast til á kortinu
skaltu fletta upp eða niður,
til hægri eða vinstri.
Sjálfgefið er að stefna
kortsins sé í norður.
Áttavitarósin sýnir stefnu
kortsins og hún snýst
þegar leiðsögn fer fram og
stefnan breytist.
Þegar kortið er skoðað á
skjánum er nýju korti hlaðið sjálfkrafa niður ef farið
er inn á svæði sem ekki er á kortunum sem búið er
að hlaða niður. Kortin eru ókeypis en niðurhal getur
falið í sér stórar gagnasendingar um farsímakerfi
þjónustuveitunnar. Þjónustuveitan gefur nánari
upplýsingar um gagnaflutningsgjöld.
Kortin vistast sjálfkrafa á samhæfu minniskorti (ef
slíkt kort er í tækinu og það er stillt sem sjálfgefin
kortageymsla).
Til að súmma að eða frá skaltu styðja á * eða #.
Notaðu mælikvarðann til að meta fjarlægð milli
tveggja punkta á kortinu.
61
St
aðsetni
ng
(GPS)
Kortaskjárinn stilltur
Til að tilgreina hvaða metrakerfi er notað á
kortunum velurðu
Valkostir
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Kort
>
Mælieiningar
>
Metrakerfi
eða
Amerískt kerfi
.
Hægt er að tilgreina hvers konar áhugaverði staði
kortið sýnir með því að velja
Valkostir
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Kort
>
Flokkar
og
tiltekna flokka.
Til að velja hvort þú vilt sjá kort í tvívídd, þrívídd,
sem gervitunglamynd eða „blandað“ velurðu
Valkostir
>
Kortastilling
>
Kort
,
Þrívíddarkort
,
Gervitungl
eða
Blandað
. Ekki er víst að hægt sé að
fá gervitunglamyndir á öllum landsvæðum.
Til að tilgreina hvort þú vilt að kortaskjárinn sé í
dag- eða næturstillingu velurðu
Valkostir
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Kort
>
Litir
>
Dagsstilling
eða
Næturstilling
Til að laga aðrar internet-, leiðsagnar- og
leiðarstillingar og almennar stillingar kortsins
velurðu
Valkostir
>
Verkfæri
>
Stillingar
.