Um Kort
Ýttu á og veldu
Kort
.
Með forritinu Kort geturðu séð hvar á kortinu þú ert
staddur, skoðað kort yfir ýmsar borgir og lönd,
leitað að heimilisföngum og ýmsum áhugaverðum
stöðum, gert leiðaráætlanir milli staða, séð
umferðarupplýsingar og vistað staði sem
uppáhaldsstaði og sent þá í samhæf tæki.
Einnig geturðu keypt viðbótarþjónustu, svo sem
borgarleiðsögn og nákvæma aksturs- &
gönguleiðsögn með raddstýringu og
umferðarupplýsingaþjónustu.
Kort nota GPS.
Sjá „Staðsetning (GPS)“, bls. 57.
Hægt
er að velja staðsetningaraðferðir fyrir tækið með
stillingum þess.
Sjá „Staðsetningar-
stillingar“, bls. 150.
Til að fá sem nákvæmastar
upplýsingar um staðsetningu skaltu nota
annaðhvort innbyggða GPS-móttakarann eða
samhæfan ytri GPS-móttakara.
Þegar þú notar Kort í fyrsta skipti þarftu e.t.v. að
tilgreina internetaðgangsstað til að geta hlaðið
niður kortaupplýsingum um þann stað sem þú ert
staddur á. Hægt er að breyta sjálfgefnum
aðgangsstað síðar með því að velja
Valkostir
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Internet
>
Sjálfg.
aðgangsstaður
í Kortum (sést aðeins ef þú ert
nettengdur).
Þegar kort er skoðað í Kortum er kortaupplýsingum
hlaðið sjálfvirkt niður í tækið af netinu. Nýju korti
er aðeins hlaðið niður ef farið er inn á svæði sem
ekki er á kortunum sem búið er að hlaða niður. Sum
kort kunna að hafa verið á minniskorti tækisins
þegar þú fékkst það.
Hægt er að hlaða niður fleiri kortum í tækið með
Nokia Map Loader forritinu.
Sjá „Niðurhal
korta“, bls. 62.
Ábending: Einnig er hægt að hlaða niður
kortum um þráðlausa staðarnetstengingu.
Niðurhal á kortum getur falið í sér stórar
gagnasendingar um farsímakerfi
þjónustuveitunnar. Upplýsingar um
gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum.
Ef þú vilt að forritið Kort komi nettengingu á
sjálfkrafa þegar það er ræst skaltu velja
Valkostir
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Internet
>
Nettenging
við ræsingu
>
Já
.
Hægt er að fá tilkynningu senda þegar tækið finnur
símkerfi utan heimasímkerfisins með því að velja
Valkostir
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Internet
>
Viðvörun um reiki
>
Kveikt
(sést aðeins þegar þú
ert nettengdur). Þjónustuveitan þín gefur nánari
upplýsingar (m.a. um reikigjöld).
60
St
aðsetni
ng
(GPS)
Nánast öll stafræn kort eru ónákvæm og
ófullnægjandi að einhverju leiti. Aldrei skal treysta
eingöngu á kort sem ætluð eru til notkunar með
þessu tæki.