Um GPS
GPS (Global Positioning System) er þráðlaust
leiðsögukerfi sem nær yfir allan hnöttinn og
samanstendur af 24 gervitunglum og jarðstöðvum
sem vakta þau. Í tækinu er innbyggður GPS-
móttakari.
GPS-móttakari tekur við útvarpsmerkjum af litlum
styrk frá gervihnöttum og mælir ferðatíma
merkjanna. Út frá ferðatímanum getur GPS-
móttakarinn reiknað út staðsetningu upp á nokkra
metra.
Hnitin í GPS-tækinu eru gefin upp í gráðum og broti
úr gráðum og alþjóðlega WGS-84 hnitakerfið er
notað.
GPS-kerfið (Global Positioning System) er rekið af
Bandaríkjastjórn sem ber alla ábyrgð á nákvæmni
þess og viðhaldi. Nákvæmni staðsetningargagna
kann að verða fyrir áhrifum af breytingum á GPS-
gervihnöttum sem gerðar eru af Bandaríkjastjórn
og kann að breytast í samræmi við stefnu
varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna um
borgaralegt GPS og alríkisáætlun um þráðlausa
leiðsögu. Nákvæmni getur einnig orðið fyrir
áhrifum af slæmri rúmfræði gervihnatta.
Staðsetning, byggingar, náttúrulegar hindranir auk
veðurskilyrða kunna að hafa áhrif á móttöku og
gæði GPS-merkja. Aðeins ætti að nota GPS-
móttakarann utanhúss til að taka á móti GPS-
merkjum.
Ekki ætti að nota GPS fyrir nákvæmar
staðsetningarmælingar og aldrei ætti að treysta
eingöngu á staðsetningargögn frá GPS-
móttakaranum og símkerfi fyrir staðsetningu eða
leiðsögn.
Tækið styður einnig Assisted GPS (A-GPS).
Assisted GPS (A-GPS) er notað til að fá hjálpargögn
með pakkagagnatengingu og hjálpar við að reikna
út hnit staðsetningar þinnar þegar tækið tekur við
merkjum frá gervitunglum.
A-GPRS er sérþjónusta.
Tækið er stillt fyrir A-GPS þjónustu, ef engar
stillingar þjónustuveitu eru til staðar fyrir það.
Hjálpargögnin eru aðeins sótt af Nokia A-GPS
miðlaranum þegar þörf er á því.
Þú verður að vera með netaðgangsstað pakkagagna
tilgreindan í tækinu til að fá hjálpargögn frá Nokia
A-GPS þjónustunni. Til að tilgreina aðgangsstað fyrir
A-GPS ýtirðu á og velur
Verkfæri
>
Stillingar
>
57
St
aðsetni
ng
(GPS)
Almennar
>
Staðsetning
>
Staðsetningarmiðlari
>
Aðgangsstaður
. Ekki er
hægt að nota aðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet
fyrir þessa þjónustu. Beðið er um netaðgangsstað
pakkagagna þegar GPS er notað í fyrsta skipti í
tækinu.
Til að kveikja eða slökkva á mismunandi
staðsetningaraðferðum, líkt og Bluetooth GPS,
ýtirðu á og velur
Verkfæri
>
Stillingar
>
Almennar
>
Staðsetning
>
Staðsetningaraðferðir
.