Vottorðastjórnun
Ýttu á og veldu
Verkfæri
>
Stillingar
>
Almennar
>
Öryggi
>
Vottorðastjórnun
.
Stafræn vottorð tryggja ekki öryggi heldur eru þau
notuð til að staðfesta uppruna hugbúnaðar.
Í aðalskjá vottorðastjórnunar er hægt að opna lista
yfir heimildavottorð sem eru vistuð í tækinu þínu.
Flettu til hægri til að skoða lista yfir persónuleg
vottorð, ef hann er fyrir hendi.
Nota ætti stafræn vottorð ef tengjast á netbanka,
öðru vefsvæði eða miðlara þar sem
trúnaðarupplýsingar eru sendar. Einnig ætti að nota
þau til að minnka hættuna á vírusum eða öðrum
skaðlegum hugbúnaði og tryggja áreiðanleika
hugbúnaðar sem hlaðið er niður af netinu og settur
upp.
Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi
verulega úr þeirri áhættu sem fylgir fjartengingum
og uppsetningu hugbúnaðar verður að nota þau
rétt svo að aukið öryggi fáist. Tilvist vottorðs er
engin vörn ein og sér. Vottorðastjórinn verður að
vera með rétt, sannvottuð eða tryggileg vottorð svo
að aukið öryggi fáist. Vottorð eru bundin tilteknum
tíma. Ef textinn „Útrunnið vottorð“ eða „Vottorðið
hefur enn ekki tekið gildi“ birtist þó svo að vottorðið
ætti að vera gilt skal athuga hvort rétt dag- og
tímasetning er á tækinu.
Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga
úr skugga um að örugglega megi treysta eiganda
þess og að það tilheyri í raun eigandanum sem
tilgreindur er.
Upplýsingar um vottorð skoðaðar—
áreiðanleiki kannaður
Aðeins er hægt að vera viss um rétt auðkenni
miðlara þegar búið er að kanna undirskrift og
gildistíma miðlaravottorðs.
Látið er vita ef uppruni miðlarans er ekki staðfestur
eða ef tækið inniheldur ekki er rétt öryggisvottorð.
Upplýsingar um vottorð eru skoðaðar með því að
fletta að því og velja
Valkostir
>
Upplýs. um
vottorð
. Þegar upplýsingar um vottorð eru opnaðar
er gildi vottorðsins kannað og einhver af
eftirfarandi athugasemdum getur birst:
●
Vottorði ekki treyst
— Þú hefur ekki valið að
láta neitt forrit nota vottorðið.
●
Vottorð útrunnið
— Gildistími vottorðsins hefur
runnið út.
●
Vottorð ekki enn gilt
— Gildistími vottorðsins
hefur enn ekki hafist.
149
Stillin
ga
r
●
Vottorð skemmt
— Vottorðið er ónothæft.
Hafðu samband við útgefanda vottorðsins.
Trauststillingum breytt
Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga
úr skugga um að örugglega megi treysta eiganda
þess og að það tilheyri í raun eigandanum sem
tilgreindur er.
Flettu að heimildavottorði og veldu
Valkostir
>
Stillingar f. traust
. Listi, sem fer eftir vottorðinu
sem valið er, birtist yfir forritin sem geta notað það.
Dæmi:
●
Symbian-uppsetning
:
Já
— Vottorðið getur
sannreynt uppruna nýs Symbian-
stýrikerfisforrits.
●
Internet
:
Já
— Vottorðið getur sannreynt
miðlara.
●
Uppsetning forrita
:
Já
— Vottorðið getur
sannreynt uppruna nýs Java™-forrits.
Veldu
Valkostir
>
Breyta still. f. traust
til að
breyta gildinu.