Stillingar símkerfis
Ýttu á og veldu
Verkfæri
>
Stillingar
>
Sími
>
Símkerfi
.
Tækið getur skipt sjálfkrafa á milli GSM- og UMTS-
kerfanna. GSM-símkerfið er táknað með í
biðstöðu. UMTS-kerfið er táknað með
.
●
Símkerfi
— Veldu hvaða kerfi þú vilt nota. Ef þú
velur
Tvöfalt kerfi
skiptir tækið sjálfkrafa á milli
GSM- og UMTS-símkerfanna í samræmi við
kerfisstillingar og reikisamninga á milli
þjónustuveitna. Þjónustuveitan þín gefur nánari
upplýsingar (m.a. um reikigjöld). Þessi valkostur
sést aðeins ef þjónustuveitan styður það.
●
Val á símafyrirtæki
— Veldu
Sjálfvirkt
til að
stilla tækið þannig að það leiti að og velji eitt af
þeim símkerfum sem eru í boði, eða
Handvirkt
til að velja símkerfi af lista. Ef tengingin rofnar
við símkerfið sem var valið handvirkt gefur tækið
frá sér hljóðmerki og biður um að símkerfi sé
valið aftur. Símkerfið sem er valið verður að vera
með reikisamning við símkerfið þitt.
Reikisamningur er samningur milli tveggja eða
fleiri farsímaþjónustuveitna um að leyfa
notendum einnar veitunnar að nota þjónustu
hinna.
●
Um endurvarpa
— Veldu
Virkar
til að láta tækið
gefa til kynna þegar það er notað á farsímakerfi
sem byggist á örbylgjutækni (MCN) og til að virkja
móttöku upplýsinga frá endurvarpa.