Gagnatengingar og
aðgangsstaðir
Tækið styður pakkagagnatengingar (sérþjónusta),
líkt og GPRS í GSM-símkerfi. Þegar tækið er notað í
GSM- og UMTS-símkerfum er hægt að hafa margar
gagnatengingar í gangi samtímis og aðgangsstaðir
geta deilt gagnatengingu. Í UMTS-símkerfinu er ekki
slökkt á gagnatengingu þegar símtal er í gangi.
Einnig er hægt að koma á gagnatengingu við
þráðlaus staðarnet. Aðeins er hægt að tengjast við
einn aðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet í einu,
en nokkur forrit geta hins vegar notað sama
aðgangsstaðinn.
153
Stillin
ga
r
Til að koma á gagnatengingu verður aðgangsstaður
að hafa verið valinn. Hægt er að tilgreina
mismunandi gerðir aðgangsstaða, líkt og:
●
MMS-aðgangsstað til að senda og taka við
margmiðlunarskilaboðum,
●
Internetaðgangsstað (IAP) til að senda og taka
við tölvupósti og tengjast við internetið
Upplýsingar um hvaða gerð aðgangsstaðar þarf að
nota fyrir tiltekna þjónustu fást hjá þjónustuveitu.
Þjónustuveitan gefur upplýsingar um
pakkagagnaþjónustu og áskrift að henni.