Tónlistarspilari
Viðvörun: Hlusta skal á tónlist með
hæfilegum hljóðstyrk. Stöðug áraun af háum
hljóðstyrk getur skaðað heyrn. Ekki skal halda
tækinu nálægt eyranu þegar hátalarinn er notaður
því hljóðstyrkur getur verið mjög mikill.
Tónlistarspilarinn styður skrár með endingunum
AAC, AAC+, eAAC+, MP3 og WMA. Tónlistarspilarinn
styður þó ekki öll skrársnið eða öll afbrigði
skráarsniða.
Einnig er hægt að nota tónlistarspilarann til að
hlusta á netvarpsþátt (podcast). Netvarp er sú
aðferð að flytja hljóð- eða myndefni á internetinu
með RSS eða Atom-tækni í farsíma og tölvur.
Hægt er að flytja tónlist úr samhæfum tækjum yfir
í tækið.
Sjá „Flutningur tónlistar yfir í
tækið“, bls. 89.