Nokia N82 - Flutningur tónlistar úr tölvu

background image

Flutningur tónlistar úr tölvu

Hægt er að beita þrem mismunandi aðferðum við

flutning úr tölvu:

Til að sjá tækið í tölvu sem ytri gagnageymslu

þangað sem hægt er að flytja allar gagnaskrár

skaltu koma á tengingu með samhæfri USB-

gagnasnúru eða um Bluetooth. Ef notuð er USB-

snúra skaltu velja

Gagnaflutningur

til að

tengjast. Setja þarf samhæft minniskort í tækið.

Til að samstilla tónlistina við Windows Media

Player skaltu stinga USB-gagnasnúrunni í

samband og velja

Miðlunarspilari

sem

tengiaðferð. Setja þarf samhæft minniskort í

tækið.

Til að nota Nokia Music Manager í Nokia Nseries

PC Suite, skaltu tengja USB-gagnasnúruna og

velja

PC Suite

sem tengiaðferð.

Notaðu

Gagnaflutningur

og

Miðlunarspilari

stillingarnar til að flytja skrár yfir á samhæft

minniskort.
Til að breyta sjálfgefinni USB-tengiaðferð ýtirðu á

og velur

Verkfæri

>

Tenging

>

USB-snúra

>

USB-stilling

.

Bæði Windows Media Player og Nokia Music

Manager í Nokia Nseries PC Suite eru til þess gerðir

að flytja tónlistarskrár eins og best verður á kosið.

Upplýsingar um flutning tónlistar með Nokia Music

Manager er að finna í hjálpartextum í Nokia Nseries

PC Suite og á þjónustusíðum Nokia.