
Þráðlausar staðarnetstengingar
Áður enþú getur notað þráðlaust staðarnet verður
að búa til internetaðgangsstað (IAP) fyrir
nettengingar. Notaðu aðgangsstaðinn fyrir
aðgerðir sem krefjast tengingar við internetið.
Sjá
„WLAN-netaðgangsstaðir“, bls. 77.
Mikilvægt: Gerðu alltaf eina af tiltækum
dulkóðunaraðferðum virka til að auka öryggi
þráðlausu nettengingarinnar. Notkun dulkóðunar
dregur úr hættunni á því að einhver fái aðgang að
gögnunum þínum án heimildar.
Þráðlausri staðarnetstengingu er komið á þegar þú
býrð til gagnatengingu með því að nota
76
Teng
in
ga
r

netaðgangsstað. Þráðlausa staðarnetstengin er
rofin þegar þú lokar gagnatengingunni.
Hægt er að nota þráðlaust staðarnet meðan á
símtali stendur eða pakkagagnatenging er virk.
Aðeins er hægt að tengjast við einn aðgangsstað
fyrir þráðlaust staðarnet í einu, en nokkur forrit geta
hins vegar notað sama aðgangsstaðinn.
Hægt er að nota þráðlausa staðarnetstengingu
þrátt fyrir að tækið sé í ótengdu sniði (ef það er í
boði). Mundu að fara að öllum viðeigandi
öryggisreglum þegar þú kemur á og notar
þráðlausa staðarnetstengingu.
Ábending: Til að sjá MAC-vistfangið sem
auðkennir tækið þitt skaltu slá inn
*#62209526# þegar tækið er í biðstöðu.