Ytri SIM-stilling
Áður en hægt er að velja þetta verða tækin að vera
pöruð saman og kveikja þarf á pöruninni í hinu
tækinu. Við pörun skal nota 16 stafa aðgangskóða
og stilla hitt tækið á leyfilegt.
81
Teng
in
ga
r
Til að nota ytri SIM-stillingu með samhæfum
bílbúnaði skaltu kveikja á Bluetooth og svo á ytri
SIM-stillingu í tækinu. Kveiktu á ytri SIM-stillingu í
hinu tækinu.
Þegar kveikt er á ytri SIM-stillingu í tækinu birtist
Ytra SIM
í biðstöðu. Slökkt er á tengingunni við
þráðlausa símkerfið, og það er gefið til kynna með
í sendistyrksvísinum. Þá er ekki hægt að nota
þjónustu SIM-kortsins eða valkosti þar sem tenging
við símkerfið er nauðsynleg.
Þegar ytri SIM-stilling hefur verið valin í þráðlausa
tækinu er aðeins hægt að hringja og svara símtölum
með samhæfum aukahlut sem er tengdur við það
(t.d. bílbúnaði). Ekki er hægt að hringja úr þráðlausa
tækinu þegar stillingin er virk, nema í
neyðarnúmerið sem er forritað í tækið. Til að
hringja úr tækinu þarf fyrst að slökkva á ytri SIM-
stillingu. Ef tækinu hefur verið læst skal fyrst slá inn
lykilnúmerið til að opna það.
Slökkt er á ytri SIM-stillingunni með því að ýta á
rofann og velja
Loka ytri SIM
.