Umhirða og viðhald
Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni
sem fara þarf gætilega með. Eftirfarandi
leiðbeiningar hjálpa til við að halda tækinu í ábyrgð.
●
Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers
kyns vökvar geta innihaldið steinefni sem tæra
rafrásirnar. Ef tækið blotnar skal fjarlægja
rafhlöðuna og leyfa því að þorna alveg áður en
rafhlaða er sett í aftur.
●
Ekki skal nota tækið á rykugum og óhreinum
stöðum né geyma það þar. Færanlegu hlutirnir
og rafrænir hlutar þess geta skemmst.
●
Ekki skal geyma tækið á heitum stað. Hátt
hitastig getur dregið úr endingu rafeindatækja,
skemmt rafhlöður og undið eða brætt sum
plastefni.
●
Ekki skal geyma tækið á köldum stað. Þegar
tækið hitnar upp að eðlilegu hitastigi getur raki
myndast innan í því og hann getur skemmt
rafrásaspjöld.
●
Ekki skal reyna að opna símann öðruvísi en
tilgreint er í þessari handbók.
●
Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða
hrista það. Óvarleg meðferð getur skemmt innri
rafrásarspjöld og fíngerðan búnað.
●
Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til
hreingerninga eða sterk hreinsiefni til þess að
þrífa tækið.
●
Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest
hreyfanlega hluti tækisins og komið í veg fyrir að
þeir vinni rétt.
●
Nota skal mjúkan, hreinan, þurran klút til að
hreinsa linsur, líkt og myndavélar-,
fjarlægðarnema- og ljósnemalinsur.
●
Aðeins skal nota loftnetið sem fylgir með
símanum eða samþykkt varaloftnet. Ósamþykkt
loftnet, breytingar á þeim eða viðbætur, gætu
skemmt tækið og kunna að brjóta í bága við
ákvæði laga og reglugerða um senditæki.
●
Nota skal hleðslutæki innandyra.
●
Alltaf skal taka öryggisafrit af gögnum sem
ætlunin er að halda, t.d. tengiliðum og
dagbókaratriðum.
●
Hægt er að endurstilla tækið af og til og tryggja
þannig hámarksafköst með því að slökkva á
tækinu og fjarlægja rafhlöðu þess.
Þessar ábendingar eiga jafnt við um tækið,
rafhlöðuna, hleðslutækið eða aðra aukahluti. Ef
166
Umhirða og viðhald
tæki vinnur ekki rétt skal fara með það til næsta
viðurkennda þjónustuaðila til lagfæringar.