
Hleðsla og afhleðsla
Tækið gengur fyrir rafhlöðu sem hægt er að
endurhlaða. Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu
nokkur hundruð sinnum en að því kemur að hún
gengur úr sér. Þegar tal- og biðtími er orðinn mun
styttri en eðlilegt er skal skipta um rafhlöðu. Aðeins
skal nota rafhlöður sem samþykktar eru af Nokia og
aðeins skal endurhlaða rafhlöðu með
hleðslutækjum sem Nokia hefur samþykkt til
notkunar með þessu tæki.
Ef verið er að nota vararafhlöðu í fyrsta skipti, eða
ef rafhlaðan hefur ekki verið notuð í langan tíma,
kann að vera nauðsynlegt að tengja hleðslutækið
og aftengja það síðan og tengja aftur til að hefja
hleðsluna.
Taka skal hleðslutækið úr sambandi við
rafmagnsinnstungu og tækið þegar það er ekki í
notkun. Ekki má hafa fullhlaðna rafhlöðnu í
sambandi við hleðslutæki þar sem ofhleðsla getur
stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar
hleðslunni smátt og smátt ef hún er ekki í notkun.
Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur
þar til hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til
hægt er að hringja.
Aðeins skal nota rafhlöðuna til þess sem hún er
ætluð. Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki eða
rafhlöðu.
Gæta skal þess að valda ekki skammhlaupi í
rafhlöðunni. Skammhlaup getur orðið fyrir slysni
þegar málmhlutur, svo sem mynt, bréfaklemma eða
penni veldur beinni tengingu milli + og - skautanna
á rafhlöðunni. (Þau líta út eins og málmrendur á
rafhlöðunni.) Til dæmis getur þetta gerst þegar
vararafhlaða er höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup
milli skautanna getur valdið skemmdum á
rafhlöðunni eða hlutnum sem veldur tengingunni.
Ef rafhlaðan er skilin eftir í miklum hitum eða
kuldum, til dæmis í lokuðum bíl að sumar- eða
vetrarlagi, dregur það úr afkastagetu hennar og
endingu. Æskilegast er að rafhlaðan sé alltaf höfð í
hita á bilinu frá 15°C að 25°C (frá 59°F að 77°F). Tæki
með of heitri eða of kaldri rafhlöðu getur orðið
óvirkt um tíma, þó svo að rafhlaðan sé fullhlaðin.
Einkum hefur mikið frost takmarkandi áhrif á
rafhlöður.
Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta
sprungið. Rafhlöður geta einnig sprungið ef þær
skemmast. Farga skal rafhlöðum í samræmi við
staðbundin lög og reglugerðir. Skila skal þeim í
163
Up
plýsingar um
rafhlö
ðu

endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki skal fleygja
þeim með heimilisúrgangi.
Ekki skal taka sundur eða tæta rafhlöður. Ef rafhlaða
lekur má vökvi hennar ekki komast í snertingu við
húð eða augu. Ef slíkt kemur fyrir skal skola húð eða
augu umsvifalaust með vatni, eða leita til læknis.
Leiðbeiningar um