sannvottun fyrir Nokia
rafhlöður
Notaðu alltaf rafhlöður frá Nokia til að tryggja
öryggi þitt. Til að ganga úr skugga um að þú notir
ósvikna Nokia rafhlöðu skaltu kaupa hana af
viðurkenndum söluaðila Nokia og skoða
heilmyndarmiðann líkt og lýst er í eftirfarandi
skrefum:
Þó svo þessum skrefum sé fylgt nákvæmlega er það
ekki fullkomin trygging fyrir því að rafhlaðan sé
ósvikin. Hafir þú minnstu ástæðu til að ætla að
rafhlaðan þín sé ekki ósvikin Nokia rafhlaða skaltu
ekki nota hana heldur fara með hana til viðurkennds
þjónustu- eða söluaðila Nokia. Viðurkenndir
þjónustu- og söluaðilar Nokia kanna hvort
rafhlaðan sé ósvikin. Ef ekki er hægt að staðfesta að
rafhlaðan sé ósvikin skaltu skila rafhlöðunni til
verslunarinnar þar sem þú keyptir hana.