Samstilling
Ýttu á og veldu
Verkfæri
>
Samstilling
.
Með samstillingarforritinu er hægt að samstilla
minnismiðana, dagbókarfærslur, textaskilaboð eða
tengiliði við mismunandi dagbókar- og
tengiliðaforrit í samhæfri tölvu eða á internetinu.
Hægt er að fá samstillingar sendar í sérstökum
skilaboðum.
Á aðalskjá Samstillingar er hægt að skoða
samstillingarsnið. Samstillingarsnið inniheldur
nauðsynlegar stillingar til að samstilla upplýsingar
í tækinu við ytri gagnagrunn á miðlara eða samhæft
tæki.
Til að samstilla gögn velurðu
Valkostir
>
Samstilla
. Hætt er við samstillingu áður en henni
er lokið með því að velja
Hætta við
.