Ökutæki
Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í
vélknúnum ökutækjum, séu þau ekki rétt upp sett
eða ekki nægilega varin, svo sem rafeindastýrða
eldsneytisgjöf, rafeindastýrð hemlakerfi (með
læsivörn), rafeindastýrð hraðakerfi og
loftpúðakerfi. Nánari upplýsingar má fá hjá
framleiðanda bílsins eða búnaðarins sem bætt
hefur verið við eða fulltrúa hans.
Aðeins á að fela fagmönnum að gera við tækið eða
setja tækið upp í ökutæki. Gölluð uppsetning eða
viðgerð kann að valda hættu og ógilda hvers kyns
ábyrgð sem kann að vera á tækinu. Ganga skal
reglulega úr skugga um að allur þráðlaus
tækjabúnaður í ökutækinu sé rétt uppsettur og
vinni rétt. Ekki má geyma eða flytja eldfima vökva,
lofttegundir eða sprengifim efni í sama rými og
tækið, hluta úr því eða aukahluti með því. Ef
ökutæki er búið loftpúða skal hafa hugfast að
loftpúðar blásast út af miklum krafti. Ekki má setja
hluti, þar með talinn uppsettan eða færanlegan
þráðlausan búnað, á svæðið yfir loftpúðanum eða á
útþenslusvið loftpúðans. Ef þráðlaus búnaður í bíl
er illa settur upp og loftpúðinn þenst út getur slíkt
orsakað alvarleg meiðsl.
Notkun tækisins meðan á flugi stendur er bönnuð.
Slökkva skal á tækinu áður en gengið er um borð í
flugvél. Notkun þráðlausra fjarskiptatækja í flugvél
getur skapað hættu við stjórn flugvélarinnar, rofið
þráðlaust símasamband og verið ólöglegt.
169
Viðbótaröryggisupplýsingar