
Ígrædd lækningatæki
Framleiðendur lækningatækja mæla með því að
15,3 sm (6 tommu) lágmarksbil sé haft á milli
þráðlauss tækis og ígrædds lækningabúnaðar, eins
og gangráðs eða ígrædds hjartarafstuðstækis til
þess að komist sé hjá hugsanlegri truflun í
168
Viðbótaröryggisupplýsingar

lækningabúnaðinum. Einstaklingar með slíkan
búnað ættu:
●
Alltaf að halda þráðlausa tækinu í meira en 15,3
sm (6 tommu) fjarlægð frá lækningabúnaðinu
þegar kveikt er á þráðlausa tækinu.
●
Ekki að ganga með þráðlausa tækið í brjóstvasa
●
Hafa þráðlausa tækið við eyrað sem er fjær
lækningabúnaðinum til að draga úr líkum á
truflunum.
●
Ef grunur leikur á að truflun sé að verða skal
slökkva á þráðlausa tækinu tafarlaust.
●
Lesið og fylgið leiðbeiningum frá framleiðanda
ígrædda lækningabúnaðarins.
Ef þú hefur spurningar um notkun þráðlausa
tækisins með ígræddum lækningabúnaði skaltu
hafa samband við heilbrigðisstarfsfólk.