Upplýsingar um vottun (SAR)
Þetta farsímatæki uppfyllir viðmiðunarreglur
um áhrif af útvarpsbylgjum.
Þráðlausa tækið er útvarpssendir og móttökutæki.
Það er hannað með tilliti til leyfilegra marka um
áhrif af útvarpsbylgjum sem alþjóðlegar
viðmiðunarreglur mæla með. Þessar
viðmiðunarreglur voru þróaðar af óháðu
vísindastofnuninni ICNIRP og innihalda
öryggismörk sem ætlað er að tryggja öryggi allra,
óháð aldri og heilsufari.
Í viðmiðunarreglum um útvarpsbylgjur þráðlausra
tækja er notuð mælieiningin SAR (Specific
Absorption Rate). Efri mörk SAR, samkvæmt
viðmiðunarreglum ICNIRP, eru 2,0 vött/kílógramm
(W/kg) að meðaltali á hver 10 grömm af líkamsvef.
Mælingar á SAR eru gerðar í hefðbundnum
notkunarstöðum þegar tækið sendir af mesta
leyfða styrk á öllum mældum tíðnisviðum.
Raunverulegur SAR-styrkur tækis í notkun getur
verið lægri en hámarksgildið, þar sem tækið er
hannað til að nota aðeins þann styrk sem þarf til að
ná sambandi við símkerfið. Fjöldi þátta hafa áhrif á
styrkinn, t.d. hversu langt notandinn er frá
grunnstöð. Samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP er
hæsta SAR-gildi fyrir notkun tækisins við eyra 1,35
W/kg.
Notkun aukabúnaðar getur valdið því að SAR-gildið
sé annað. SAR-gildi kunna að vera breytileg milli
landa sökum mismunandi upplýsingaskyldu, krafna
og tíðnisviðs. Viðbótarupplýsingar um SAR má finna
í upplýsingum um vörur á www.nokia.com.
171
Viðbótaröryggisupplýsingar